AndvakaDagný Ósk Gunnarsdóttir
Jæja krakkar, nú er komið að því. Minna en mánuður í jólin, nokkrir dagar í próf og já ég er heima að kveljast úr veikindum. Get varla andað þannig ég get ekki sofið. Er sem sagt andvaka. Hlustandi á Royksopp, reyna að klára verkefni og já eitthvað að reyna að tjá mig á msn.VEIKINDIN eru að fara með mig. Röddina, líkamann og já að mestu geðheilsu. Það er ekki gott að vera veikur. Ég er þannig að þegar ég verð virkilega veik þá fer ég í mikla afneitun og trúi því ekki. Held venjulegum háttum mínum áfram og þ.a.l. verð ég meira veik. Veikari og veikari. Þetta byrjaði allt saman á því að vera kvef og hefur þróast svona skemmtilega út í lungnabólgu og núna á ég er í erfiðleikum með að anda. Held ég þurfi að læra að slaka á. Kannski hætta að hlusta á mömmu mína sem trúir ekki á veikindi? Kannski að ég geri það einn daginn þegar ég flyt frá henni. Já ég er komin aftur heim. Sakna Bjargar einum of.
SKÓLINN er að gera mig geðveika einnig. Ég á eftir að gera þónokkuð en já veikindin bæta ekki út því skal ég segja þér. Ég átti einmitt að klára nokkur verkefni í dag. Mæta í nokkra tíma. Vaknaði kl. 7:30 í morgun átti ekki að mæta fyrr en 9:50 en ætlaði að vera dugleg og læra smá. Ég gat varla lært útaf hóstanum í sjálfri mér. Ég ætlaði nú varla að fara að trufla 30 nemendur og smita nokkra í leiðinni þannig ég hélt mér heimafyrir og hélt áfram að læra. Get ekki sagt að ég hafi náð að afkasta miklu. Fann mér alltaf eitthvað annað að gera. Til dæmis fara í sturtu, taka til, skoða blöðin og svo sest ég alltaf aftur fyrir framan tölvuna og reyni að gera eitthvað. Núna er ég til dæmis að "læra" eða ég á að vera að skrifa 2000 orða ritgerð fyrir listasögu. Ég er komin með 400 orð. Nenni ekki meiru. Held ég komi mér bara í gírinn á morgun. (Á morgun segir sá lati).
SEINUSTU daga hef ég verið í veikindum mínum að fara út að taka myndir af systur minni. Sérstaklega skemmtilegt að fara í snjóinn og láta hana sitja á úlpunni minni svo hún geti setið og ég náð betri myndum. Svo skil ég ekki af hverju ég er veik hehe.. ég er nú meiri helvítis lúðinn. Alla vega það er hægt að skoða myndirnar mínar á www.flickr.com/photos/dagogunn.
Alla vega ég er farin að "læra". Bæbæ
Melrose Place eða Beverly Hills ????Dagný Ósk Gunnarsdóttir
Eftir mörg hótunarbréf og símaöt þá ákvað ég að setjast niður fyrir framan tölvuna og skrifa fyrsta bloggið mitt í lengri tíma.Fólk eyðir stundum heilri eilífð í að leita af ástinni. Konur sleppa fáu þegar þær eru að reyna að impressa gæja. Sumar fara að horfa á fótbolta, aðrar fara í megrun, hinar setja á sig tonn af make-up-i. Ég fór niðrí bæ um helgina. Þar sá ég 15 ára stelpur sem skildu fötin sín eftir heima eða hefðu betur gert það því að fatnaður þeirra einkenndist af píkustuttum pilsum og flegnum bol niður á nafla. Ég hef alla vega komist að því að ef ég eignast dóttur ætla ég að læsa hana inni í herbergi þar til að hún verður 18 ára.
Því miður get ég ekki sagt hvernig strákarnir eru í þessum málum en strákarnir gera hárið sitt flott, klæða sig í flott föt og hvað eina. Ég samt veit ekki hvort að þeir séu að fara að gera það fyrir sig eða fyrir stelpurnar.
Ég sit hérna með hálft augað á sjónvarpinu þar sem er verið að endursýna Melrose Place. Þættir sem ég elskaði í æsku. Í dag horfi ég á þetta og sé hvernig allir eru með öllum. Það er ekkert mál fyrir þetta fólk að elska. Það er jafnauðvelt að hata. Þau skipta um "lovers" eins oft og flestir bursta á sér tennurnar. Sama er með Beverly Hills allir eru með öllum. Sama með Friends. Hvað er málið með þetta? Er verið að sýna okkur að þetta sé auðvelt eða að maður þurfi bara að finna rétta vinahópinn til að bara henda sér á milli? Sex and the city er nær raunveruleikanum en allt annað. Samt sé ég ekki hvernig hún getur keypt alla þessa skó og öll þessi flottu föt og hún bara vinnur einu sinni í viku.
Jæja.. núna eruð þið örugglega farin að halda ég sé ein af þessum gellum. Well ég er það upp að vissu marki. Og já kannski að ég horfi of mikið á sjónvarp kannski. Alla vega láta ykkur vita elskurnar að ég er komin í pásu. WÚHÚ!!!
11. september eða Hírósíma Nakasaki...Dagný Ósk Gunnarsdóttir
Ég man eftir því þegar við sáum fall turnanna. Við vorum í efnafræði og Jón Skírnir var að kenna okkur. Það var fimm mínútna þögn til að minnast þeirra sem fórust og þeirra sem var saknað. Margir dóu þennan dag. Það eru færri nemendur í skólanum sem ég er í en þeir sem fórust. Þetta getur ekki verið auðvelt. Hvað fólkið hugsar. Lifði maðurinn minn, pabbi minn, mamma mín, konan mín, barnið mitt þetta af? Eru þau enn þá þarna úti? Þetta er örugglega hræðileg tilfinning. Í ár voru 5 ár síðan að þetta gerðist. Fólk er enn þá að minnast þess, hvernig tvíburaturnarnir féllu niður.Þetta er mjög sorglegur hlutur. 3000 manns fórust útaf því að Osama Bin Laden vaknaði á vitlausum stað í lífinu. Samt þegar ég hugsa til þess, það dóu örugglega fleiri víðsvegar um BNA en bara ekki öll á sama stað. Þegar ég fór að hugsa lengra og um meira í víðara samhengi fór ég að hugsa um "kjarnorkuæfingar" BNA manna. Hírósíma, Nakasaki. Þetta voru borgir. Borgir sem voru þurrkaðar út útaf tilraunum um eitthvað sem ætti helst ekki að hafa verið framleitt. Fólk er enn þá að fæðast vanskapað útaf eitri sem eru leyfar kjarnorkunnar.
Tekur fólk mínútu þögn á hverju ári til að minnast þess hvað dóu margir í þeirri tilraun? Hvað margir eru enn þá að borga fyrir þetta? Satt að segja hef ég aldrei heyrt um það.
Við höldum áfram með okkar every day life og hugsum ekki útí það en þegar það kemur að BNA þá erum við all into it. Eins og við séum hluti af þessari heild. Mér finnst frábært að minnast þeirra með þögn en það þarf líka að láta fólk vita hvað það eru margir að deyja á hverjum degi. Hvað það eru margir sem eru í sársauka ekki bara þeir sem dóu, þeir sem misstu ættingja, ástvini eða jafnvel vin. Þetta er mjög gott ég er öll í því. Finnst það sjálfsagt en eigum við að láta restina bara fljóta framhjá okkur?
Kveðja.
KvikmyndirDagný Ósk Gunnarsdóttir
Ég fór í bíó í kvöld með Katrínu og co. Myndin hét Step up. Þessi mynd var svo týpísk að mér var næstum orðið óglatt. Þegar fyrstu atriði myndarinnar sýndu fram á það hvernig myndin myndi enda. Allt sem gerðist var eins og vel flestar Hollywood myndir. Ég myndi frekar vilja horfa á Metropolis 400 sinnum í stað þess að horfa á þessa mynd aftur en þá vil ég líka benda á það að Metropolis er þögul mynd. Handritið var hræðilegt. Leikurinn var til skammar og klippingin var ágætt en oft ekki í réttu samhengi.Hvaða Hollywood mynd hefur ekki eitt dramaatriði. Dramað í þessari mynd var mjög sorglegt og allt það en hvernig fólkið tók þessu. Hvað var sagt. Þetta var ofleikið og illa leikið. Systur mínar sem eru 7 ára geta gert betur. Sársaukinn sást ekki.
Þessi mynd ótrúlegt en satt hafði þó eitt gott atriði. Það var dansatriði. Það er greinilegt að þessir "leikarar" voru allir dansarar því að það atriði var mjög flott. Dansinn var frábært en þetta var líka örugglega eina atriðið sem ekki var talað. Tónlist var spiluð og fólkið dansaði. Frábært atriði. Eina atriðið sem ég fylgdist með ánægjulega.
Samanlagt verð ég að segja að þessi mynd var hræðileg.
Kvikmyndir hafa greinilega ekki sama hlutverk og þær gerðu. Þöglar myndir sögðu meira en þær sem eru framleiddar í dag. Að vísu eru þær frekar hraðar vegna þeirra ramma sem þær eru teknar upp í og þeim sem hún er spiluð í. Þær hafa meiri tilfinningu. Ég hef verið að horfa á fyrstu myndir sem gerðar voru og það sést að það var merking bakvið öll atriðin. Fyrstu kvikmyndirnar voru þannig að um leið og filman kláraðist þá kláraðist myndin. Samt var hægt að fá meira úr því en flestar myndir sem gerðar eru í dag.
Ég er komin með nett ógeð af þessum týpísku ástarmyndum í Hollywood. Gamanmyndirnar eru ágætar en oft frekar leiðinlegur söguþráður eða jafnvel enginn. Ég kann ekki að meta svona.
Jæja lífið að heimanDagný Ósk Gunnarsdóttir
Núna er ég búin að vera í nokkra daga hérna hjá henni Björgu sætu. Ég er alveg að venjast þessu nema það kom svoldið upp á á miðv þannig ég svaf frekar lítið þá nótt. Varð veik og eitthvern andskotann en samt sem áður skemmti ég mér mjög vel. Geggjað næs að vera hérna. Ekkert vesen nema kannski að maður þarf að kaupa sér mat.Ég er að fara að vinna núna. Vonandi drukkuð þið mikið og skemmtuð ykkur í kvöld elskurnar.
AndvakaDagný Ósk Gunnarsdóttir
Ég er farin að sakna þess að hafa eitthvað að tala um. Ég sit hérna í einhverfu minn á laugardegi og ég get ekki sofnað. Ég á að mæta í vinnuna eftir 2 tíma sirka og ég nenni ekki að fara að sofa. Andlega get það ekki. Ég reyndi áðan. Lokaði augunum, lá upp í rúmi og ekkert. Það varð ekkert svart hjá mér. Ég er að hugsa um þetta. Ég er að fara að vinna til kl. 1 ég hlýt að geta gert þetta. Síðan ætla ég heim láta nudda mig og rotna í einhverfu minni. Ég veit ekki hvað það er en ég fíla þetta plan mitt í tætlur. Alla vega hef ekkert mikið meira að segja en Katrín er farinn heim.MenningarnóttDagný Ósk Gunnarsdóttir
Afsökun allra til að fara niðrí bæ. Allir taka krakkana með sér og hella sig fulla. Við höldum upp á menninguna með því að hella okkur fulla og sjá hversu skrautleg við verðum eftir 7 bjóra. Ég var ekki ein af þeim enda er ég búin að vera edrú í næstum 2 mánuði. Það er kannski ekki mikið en það er nóg. Ég var þessi sem var í spreng að reyna að keyra framhjá öllu þessu fólki. Bókstaflega misnotaði flautuna. Öskrandi öllu illu og já þetta fulla lið náði að fara í taugarnar á mér. Ætli ég sé að byrja á túr eða eitthvað. Það er spurning.Íslendingar eru verstu fyllibyttur örruglega í öllum heiminum. Ég veit ekki um neina þjóð sem drekkur og drekkur og drekkur þar til að þeir verða motionless og deyja áfengisdauða. Svo eru það gaurarnir og stelpurnar sem verða bara slagsóð. Vilja bara slást og vera með læti. Ég sá alveg vott af ofdrykkju og það voru meira að segja 14 ára krakkar. Reyndar eru stelpur frá 14 ára að fara inn á bari eins og Hverfis, Pravda og hvað eina. Alla þessa staði þar sem að kvenmenn gleyma að fara í föt eða betur sagt eru í píkustuttu pilsi og það flegnum bol að brjóstin gætu dottið útúr bolnum við aðeins smá dill á dansgólfinu.
Ef ég á að segja eins og er þá finnst mér fólk hafa litla sjálfsvirðingu sem lætur svona. Mætir í fáum sem engum fötum, drekkur frá sér vit og gerir sig að algjöru fífli. Fólk finnst gaman að gera þetta. Vaknar síðan daginn eftir í þynnku og ógeði. Segist aldrei ætla að drekka aftur fyrr en næsta helgi kemur. Er ælandi og ógeðslegt. Þetta fór í taugarnar á mér í gær.
Ég get kannski ekki sagt mikið útaf því að ég var ein af þeim en samt eftir að ég hætti að drekka og fór að fara niðrí bæ þá sér maður þetta lið með öðrum augum. Fólk hagar sér ekki vel. Ekki með fulle femm.
Vonandi að þið hafið skemmt ykkur vel.
Kveðja
Ævintýri en gerast..Dagný Ósk Gunnarsdóttir
Í einhvefu minni horfði ég á teiknimyndir alla föstudagsnóttina. Ég horfði á þætti sem voru gerðir um sögupersónur eins og Litla Hafmeyjan, Aladdin og fl. Ég man þegar ég horfði fyrst á Litlu Hafmeyjuna. Ég man hvað mig langaði að vera með sporð. Ég jafnvel lá tímunum saman í baðkerinu og vonaði að ég myndi fá sporð. Fór niðrí fjöru og fann fallegar skeljar en þó aldrei eins flottar og Ariel var með. Ég lifði mig svo inn í þetta.Eru teiknimyndir og bíómyndir að uppfylla drauma okkar? Eru þær að sýna það sem við viljum geta en nennum ekki að vinna að? Eru myndir að sýna fram á hversu fjörugt ímyndunarafl mannsins er? Hver hefur ekki labbað útaf karate mynd og langað að kunna karate? Horft á rómantíska mynd og vilja kyssa eitthvern? Ef ég er ein um það þá allt í lagi.
Ég get ekki horft á Harry Potter... mig langar ekki að fljúga á kúst. Hlaupa á múrvegg til að komast að eitthverri lest og hvað hann eiginlega gerir þessi elska. Harry Potter er einum of mikið ævintýri fyrir mig. Mig langar að galdra en þetta er bara eitthvað sem ég get ekki horft á. Þetta er eitthvað sem ehh bara plain gerist ekki. Eins með Lord of the rings. Ég reyndi að horfa á fyrstu myndina ég sofnaði 4 sinnum. Sá eitt og eitt atriði. Gaur með hring og það gerir hann eilífan og hugfanginn af þessum hring. Síðan snýst þetta bara um þennan hring. Ég skil ekki þannig langar ekkert sérlega í þennan hring og hef það fínt. Lifa í 1000 ár?? nei takk. (En það er allt annar sálmur)
Sama hversu mindtwisted maður er. Eins og ég vil ekki hafa þetta of mikið ævintýri. Ég vil geta horft á eitthvað og segja já þetta gæti gerst (þá á ég við bíómyndir en ekki teiknimyndir því að eftir að hafa fengið rúsínuputta og tær næstum á hverjum degi við tilraunir mínar um að verða hafmeyja þá fór það að segja mér eitthvað). Ég get þó samt orðið prinsessa en ég þyrfti að giftast prins. Ég held að bíómyndir séu gerðar til að leyfa manni að fara í aðra veröld. Draumaheiminn. Þannig ég mæli með því að þið farið og takið upp teiknimyndirnar sem þið horfuð á sem börn. Minnist þess hvað það var ljúft.
Kveðja
Verlsunarmannahelgi!!!Dagný Ósk Gunnarsdóttir
Verslunarmannahelgin er víst búin. Seinasti dagurinn af henni er að klárast, réttara sagt 4 tímar eftir af þessari unaðslegu helgi. Ég get sagt alveg eins og er þetta er verslunarmannahelgi sem ég man eftir 100%. Áfengi snerti ekki minn munn og kaffidrykkja eyðilagði fyrir mér svefn. Ég er búin að vera þessi hressa niðrí bæ með vatnsglas. Ég held samt sem áður að ég hafi aldrei skemmt mér jafn vel og ég gerði þessa helgi. Ég hef sögur af hinum og þessum þó aðallega þessum en samt skemmtilegt að sjá hvað fólk er ruglað þegar það fullt og svo daginn eftir þunnt. Ég sat einmitt í alsælu þegar ég sá hvað vinur minn var þunnur. Fannst ekkert skemmtilegra að vera bara hress en samt sem áður skemmti ég mér betur en hann að öllu leyti. Ældi ekki, gerði engann skandal og eyddi 0 kr. niðrí bæ.Innipúkinn var frábær peningaeyðsla að öllu leyti. Ég fór á föstudag og svo gleymdi ég bara að fara á hina dagana. Reyndar kíkti ég rétt inn á sunnudag en það var nú takmarkað í gangi þá. Klukkan var víst orðið svoldið margt.
Ég veit ekki hvað ég skal segja meira en vonandi að þið hafið skemmt ykkur jafn vel og ég.
Kveðja
Ó Ísland, fagra ÍslandDagný Ósk Gunnarsdóttir
Ég elska Ísland!!! Sama hvort það rignir eða er sól hvort að það snjói og sé mikið rok ég elska Ísland. Þá sérstaklega hátíðarnar. Verslunarmannhelgi er að renna í garð. Wúhú. Þetta er afsökun ekki bara fyrir því að tapa öllu viti heldur líka að drekka eins mikið og maður getur, sofna úti, syngja sig máttlausan, sofa óspart hjá og bara skemmta sér. Þetta er eitthvað sem allir ættu að prufa. Því miður hef ég enga svona afsökun í ár. Ætla ekki að drekka, en ég ætla svo að syngja frá mér röddina og dansa af mér bossann á Innipúkanum.Planið hjá mér byrjar á föstudag. Ég ætla að skella mér á Dillon á fös og fara í hina árlegu grillveislu X FM. Eftir góðan mat og gott spjall ætla ég niðrá Nasa þar sem partýið verður alla helgina.
Til að slútta þessu þá ætla ég að quota skemmtilegt lag:
Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir
Ísland í huga þér, hvar sem þú ferð.
Ísland er landið sem ungan þig dreymir,
Ísland í vonanna birtu þú sérð,
Ísland í sumarsins algræna skrúði,
Ísland með blikandi norðljósa traf.
Ísland að feðranna afrekum hlúði,
Ísland er foldin, sem lífið þér gaf.
Íslensk er þjóðin sem arfinn þinn geymir
Íslensk er tunga þín skír eins og gull.
Íslensk er sú lind,sem um æðar þér streymir.
Íslensk er vonin, af bjartsýni full.
Íslensk er vornóttin, albjört sem dagur,
Íslensk er lundin með karlmennskuþor.
Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur.
Íslensk er trúin á frelsisins vor.
Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma
Íslandi helgar þú krafta og starf
Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma
íslenska tungu, hinn dýrasta arf.
Ísland sé blessað um aldanna raðir,
íslenska moldin, er lífið þér gaf.
Ísland sé falið þér, eilífi faðir.
Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf.
Skemmtið ykkur um versló... ekki gera neitt sem ég myndi ekki gera ;)