Hvað snýst þetta allt saman um?Dagný Ósk Gunnarsdóttir
Ég er að fara til útlanda eftir 24 daga. Ég er að fara til Mallorca, eyja við strendur Spánar. Ég er eða var rétt áðan að skoða bikini á Victorias Secret. Ég sit hérna og glápi á stelpur með fullkomna líkama eða hvað? Þær eru þvengmjóar. Það er eins og þær fái ekkert að borða á tökustöðunum. Það er eins og þær hafi gubbað matnum sínum mest allt líf. Er þetta það sem fólk sækist eftir. Ég veit alveg að strákar líta á þessa þvengmjóu í stutta pilsinu en ekki þessa sem er kannski 40 kílóum of þung í venjulegum fötum. Hvað hefur komið fyrir þessa ímynd? Á tímum Marilyn Monroe var ekkert fallegra en að vera íturlega vaxinn í dag þarf maður að vera svo ógeðslega mjór að maður er farinn að hverfa þegar maður fer á hlið. Sumir strákar eða vel flestir vilja ekki fá meira til að elska heldur vilja þeir fá tannstöngul til að hreinsa um pungum þeirra inn á milli.Ég er average. Ég er ekki feit og ég er ekki grönn. Mig langar að vera grennri útaf þessari ímynd. Hugsa að ef ég verð grönn eins og Paris Hilton eða what's her face þá myndu strákarnir taka eftir mér. Ég yrði vinsælli hjá strákunum. Stundum verð ég þunglynd bara á að hugsa um það sem ég er borða. Vá ég fékk mér tvær samlokur. Djöfulsins hlunkur get ég verið. Hefði átt að sleppa þessu. Hefði átt að fá mér hrökkbrauð með kotasælu, létt kotasælu þakka þér fyrir. Myndi mér líða betur eða verr?
Þyngd og útlit er orðið eitthvað sem fólk verður háð. Þeir verða helteknir af því hvernig þeir líta út. Þeir verða að líta sem best út. Lýtalæknar eru með sjónvarpsþátt um manneskjur sem fer í lýtaaðgerðir. Lýti er tekið af orðinu ljótur. Lýtaaðgerðir eiga að láta mann verða fallegri. En kommon eftir að hafa fengið sílíkon í brjóstin, rassinn, varirnar og jafnvel magavöðvana verður maður ekki orðinn svoldið sjúskaður. Ég veit ekki en mér finnst Michael Jacksson ekki sætur, Cher var alveg sætari en hún er í dag. Janice Dickenson er ÓGEÐSLEG. Þetta er fólk sem þarf ekki á þessu að halda heldur bara fólk sem vill halda í eitthvað sem það hafði. Eða alla vega Cher og Janice.
Fólk vill verða fullkomið. Fullkomnun er eitthvað sem er erfitt að ná. Hvenær vitum við að við erum fullkomin? Er eitthvað sem segir okkur að nákvæmlega þetta er fullkomnun. Nei það er ekkert í heiminum. Xenófanes kom með skemmtilega kenningu að endanlegur sannleikur er ekki til við myndum ekki einu sinni taka eftir því þótt við segðum hann sjálf því í raun og veru þá vitum við ekki hver hann er og þar af leiðandi vitum við ekki hvort við séum að segja hann eða ekki. Fullkomnun er bara orð sem við verðum að skilgreina sjálf. Skilgreina orðið svo við getum náð sátt við sjálfa okkur. Það sem mér finnst fullkomið er kannski það sem annað fólk lítur á sem heimskulegan hlut eða heimskulegan hugsunarhátt.
Það fer virkilega í taugarnar á mér að fólk er svona sex symbol. Hvað er það eiginlega? George Clooney the sexiest man alive. Þurfa allir menn að vera eins og hann til að vera sexy? Mér finnst þetta bara orðið of svoldið langt gengið. Æi vá ég er farin að bulla en já I SAY IT LOUD AND I SAY IT PROUD.. I'M AVERAGE AND I HAVE ALOT FOR OTHERS TO LOVE..
Athugasemdir
2
Tedda skrifar:
Já þetta útlitsdæmi er eilífðarpæling... held samt að strákar sækist ekki endilega eftir þvengmjóum stelpum... hef allavegana heyrt ansi marga stráka segja að þeir vilji ekki hafa stelpur of mjóar.... Svo er hægt að pæla og velta sér endalaust upp úr þessu... Það er eins og maður sé aldrei alveg ánægður!!! Maður vill léttast.... og gerir það... .þá finnur maður eitthvað annað að kvarta yfir!!! Er ekki bara spurning að reyna að sættast við sjálfan sig?
30. maí 2006 klukkan 19:28
3
Hjálmar skrifar:
Mér persónulega hefur alltaf þótt VS stelpurnar mjög flottar því að þær hafa yfirleitt verið með eitthvað á sér, þ.e ekki of mjóar... stelpur í toppformi:)
En sem betur fer er fullkomnun ekki til, því að þá hefðum við ekki tækifæri á að bæta okkur á hverjum degi... eða hvað:)
En þessi staðlaða týpa sem auglýst er hér og þar út um allann bæ höfðar held ég ekki til flestra stráka, hún höfðar til ýmindunaraflsins þeirra!
Að minnsta kosti höfða þessar týpur ekki til mín, nema að því leiti að ég sé bara "hlut" í gegnum skjáinn... en fæ ekki að kynnast manneskjunni... Hvaða strákur vill svo sem vera með stelpu sem er flott og hefur "allt" (gæti verið persónubundið) en talar og talar eða hefur sjálfstraust á við mús:)
Ég sjálfur var með stelpu í bekk sem var nú ekki neitt voða mikið fyrir augað þannig séð, meira segja vinur minn spurði mig hvort hún liti ekki soldið skringilega út:S En þegar ég kynntist henni þá kom í ljós að hún hafði mikið meira en útlitið með sér... hún hafði hraustlegt og flott útlit (þá er ég að meina hún hugsaði vel um sjálfa sig) hún var alltaf flott klædd og það sem gerði hana aðlaðandi var perónan hennar!
Allavega snýst þetta ekki um þessar stöðluðu ímyndir sem eru búnar til til þess að leika í huganum okkar! Fyrir mitt leyti þá snýst þetta um að vera maður sjálfur og gera það sem maður vill (án þess þó að skaða aðra) því það heillar ekkert meira en manneskja með sjálfstraust og lætur sér líða vel.... en það er svo sem ekkert auðveldur vegur að rata:)

30. maí 2006 klukkan 21:57
4
Gunnar skrifar:
Það er auðvitað hægt að sjá 2 hliðar (og auðvitað fleiri) á þessu. Ok, gott mál ef fyrirmyndirnar eru grannar og spengilegar hraustlegar stelpur. Það hvetur fólkið sem fær sér burger king í morgun mat, kfc í hádeginu og dominos í kvöldmat til að hugsa sinn gang. Maður verður aldrei hraustlegur af því að lifa á þessum mat. Og kanski verður það til þess að þetta fólk fari að hreyfa sig aðeins til að ganga meira í augun á hinu kyninu.
Hinnsvegar er mjög slæmt mál ef fyrirmyndirnar eru bókstaflega horaðar, ekki grannar, heldur horaðar, með bauga, enga vöðva. Líta út fyrir að hafa svelt sig, með búlemíu eða á einhverjum vafasömum lyfjum.
Ímyndaðu þér hvernig heimurinn myndi fara ef fyrirmyndirnar væru alltíeinu orðnar 50KG of þungar. Þá færu stelpur (og strákar) að fita sig til að "líta vel út", ekki væri það gott. Þeir sem hafa verið of feitir og eru grannir í dag vita það að manni líður ekki vel þegar maður er feitur. Þá er ég ekki að tala um andlegu hliðina, heldur að hvernig maður er alltaf uppgefinn og líður líkamlega illa.
En já. ég er kominn langt út fyrir umræðu efnið.
Ég gæti ALDREI hugsað mér að vera með manneskju sem mér líkaði ekki við. Sama hversu falleg og flott hún væri. Aftur á móti væri ég hugsanlega til í að gera compromize varðandi útlit ef mér líka vel við persónuna.
Mér þykir staðlaðar ímyndir góðar að vissi marki. Þær geta verið ágætis viðmið, en það á þó alltaf að taka þeim með fyrirvara.

31. maí 2006 klukkan 22:04
Það er alveg fólk sem fer meira eftir innra útlitinu, en er það ekki bara fólk sem er ljótt? Ef manneskjan er ekki ljót, þá tekur það ljótu manneskjuna mun lengri tíma að kynnast fallegu manneskjunni, þar sem útlitið er "first impression" og ef fallegu manneskjunni finnst hin manneskjan ljót, er það slæmt "first impression".
Þetta er svipað og ef við tökum 4 gaura.
1. Fallegan mann sem er vel innrættur.
2. Fallegan mann sem er illa innrættur.
3. Ljótan mann sem er vel innrættur.
4. Ljótan mann sem er illa innrættur.
Hvað myndir þú velja? Ekki einu sinni reyna að segja mér að þú myndir velja 3 og 4. Segjum svo að þú kynnist manni 3 og komist að því að hann er vel innrættur, þá finnst þér hann ósjálfrátt verða fallegri og fallegri, og því betur sem þú kynnist honum, því betur líkar þér við hann.
Með "ljótu" meina ég ófrítt, feitt, horað, o.s.frv., ss. fólk með útlitsgalla.
En varðandi ljótleika. Það er ekki allt staðlað "ljótt", svipað og með "fallegt". Sumum finnst eitthvað ljótt og sumum finnst eitthvað fallegt. Á meðan einni stelpu finnst einhver strákur ljótur, þá gæti annari stelpu þótt hann mjög fallegur.
Svona er þetta bara. :) Life is complicated.